Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar. Auglýst eftir verkefnum

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita alls 100 milljónum króna árið 2008 til eflingar atvinnuþróunar og nýsköpunar á þeim svæðum sem verða fyrir aflasamdrætti vegna skerðingar þorskaflaheimilda.  Styrkhæf svæði eru sveitarfélög og eyjar þar sem hlutfall starfa í veiðum og vinnslu er 10% eða hærra.  Áformað er að í fjárlögum ársins 2009 verði 100 milljónir sem verður ráðstafað á sama hátt. Auglýst er eftir umsóknum um stuðning við verkefni á viðkomandi svæðum. 

Umsækjendur geta verið sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklingar.  Hámarksstyrkur er 8 milljónir króna, þó aldrei hærri en 50% af viðurkenndum heildarkostnaði verkefnisins.  Hámarks hlutafé er 8 milljónir króna, þó að hámarki 50% af heildarhlutafé. 

Styrkir verða veittir til: Stofnkostnaðar annars en kaupa/byggingar húsnæðis, véla og tækja.  Þróunarkostnaðar á vöru og/eða þjónustu Markaðssetningar á vöru og/eða þjónustu. Við afgreiðslu umsókna verður sérstaklega litið til langtímaáhrifa verkefna, sköpunar nýrra starfa á svæðunum og hversu hratt störfin geta orðið til.  Ekki er um að ræða styrki/hlutafé til menntunar- og rannsóknarverkefna. 

Nánari upplýsingar um mat á umsóknum má finna hér. http://www.byggdastofnun.is/static/files/Kynningar/Mark-tilg..doc
Umsóknum skal skila á sérstökum umsóknareyðublöðum sem hægt er að nálgast hér: http://www.byggdastofnun.is/static/files/Eydublod/mot-umsokn.doc

Umsóknum skal skila fyrir 19. febrúar til AFE Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, Skipagata 9, 600 Akureyri,  http://www.afe.is/ sími: 460-5700 netfang: afe@afe.is