Auglýst er eftir umsóknum til stuðnings verkefna til atvinnusköpunar í ferðaþjónustu

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita alls 160 milljónum króna til eflingar ferðaþjónustu á þeim svæðum sem verða fyrir aflasamdrætti vegna skerðingar á veiðiheimildum. Auglýst er eftir umsóknum um á ofangreindum svæðum. Umsækjendur geta verið sveitarfélög, einstaklingar og fyrirtæki og er hámarksstyrkur til hvers verkefnis 8 milljónir kr. Verkefnin verði unnin á árunum 2008-2009 og verður styrkurinn greiddur í tvennu lagi, helmingur hvort ár. Seinni greiðslan er háð árangursmælingu í samræmi við ákvæði í umsókn, en hver umsækjandi gerir tillögu að árangursmælikvarða fyrir viðkomandi verkefni. Við afgreiðslu umsókna verður sérstaklega litið til langtímaáhrifa verkefna á sköpun nýrra starfa á svæðunum og hversu hratt störfin geta orðið til. Ekki er um að ræða styrki til menntunar eða rannsókna. Umsóknum skal skila á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem hægt er að nálgast hér á vefnum (sjá tengil hér fyrir neðan).Umsóknum skal skila til Byggðastofnunar, Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki

eða Ferðamálastofu, Lækjargötu 3, 101 Reykjavík fyrir 5. febrúar 2008.