Fréttir

Snjóflóðavarnargarðarnir á Siglufirði vígðir

Fimmtudaginn 9. október verða snjóflóðavarnargarðarnir á Siglufirði vígðir. Að því tilefni er íbúum boðið til eftirfarandi dagskrár. 16:00 - Tekið á móti umhverfisráðherra og öðrum gestum við „Bakkatjörn"  16:15 - Gengið eftir Hólavegi upp á og eftir garði 4 og áfram sem leið liggur suður eftir garði 3 og endað á „Amfiteater" ofan við garð 2.
Lesa meira

Bás Fjallabyggðar tilnefndur til verðlauna

Bás Fjallabyggðar hefur verið tilnefndur til verðlauna sem besti hóp básinn á Sjávarútvegssýningunnni sem fer fram í Smáranum í Kópavogi.
Lesa meira

Góð aðsókn að sýningarbási Fjallabyggðar á sjávarútvegssýningu

Góð aðsókn hefur verið að sýningarbási Fjallabyggðar á Íslensku sjávarútvegssýningunni í Smáranum í Kópavogi sem hófst í dag. Þar kynna nokkur fyrirtæki frá Siglufirði og Ólafsfirði afurðir sínar og þjónustu.
Lesa meira

Opið hús í Herhúsinu

Gunnella býður alla velkomna í heimsókn í Herhúsið laugardaginn 4. október frá kl. 15 - 18
Lesa meira

Samningur um íþróttasvæði

Bæjarráð samþykkti á síðasta fundi sínum samning milli Valló ehf. og Fjallabyggðar um rekstur íþróttasvæða á Siglufirði. Samningurinn hljóðar uppá 17,7 miljónir og gildir í eitt ár.
Lesa meira

Friðrik Ómar með tónleika í Ólafsfjarðarkirkju

Sérstakir styrktartónleikar með Friðriki Ómari verða í Ólafsfjarðarkirkju fimmtudaginn 2. október. Ágóði tónleikanna rennur í styrktarsjóð vegna sviplegs fráfalls Hrafnhildar Lilju Georgsdóttur, sem stofnaður var af vinum hinnar látnu. Flutt verða m.a. lög sem Vilhjálmur Vilhjálmsson gerði vinsæl auk fjölda þekktra dægurlaga Það er Grétar Örvarsson sem leikur undir á píanó. Hugljúf og notaleg kvöldstund.
Lesa meira

Göngustígur norðan Hornbrekku

Niðurstaða tilboða sem opnuð voru á Ólafsfirði 16. september 2008. Eftirfarandi aðilar sendu inn tilboð í gerð göngustígs norðan Hornbrekku. Eftir yfirferð og leiðréttingar á magntölum  er niðurstaðan eftirfarandi.
Lesa meira

Lausar íbúðir í Skálarhlíð

Lausar eru íbúðir nr. 310 og 304 í Skálarhlíð. Umsóknareyðurblöð er hægt að fá á bæjarskrifstofu og í Skálarhlíð. Nánari upplýsingar um íbúðirnar gefur Helga Hermannsdóttir í síma 467-1147
Lesa meira

Vetrarstarf Dagþjónustu aldraðra Siglufirði er hafið

Minnum á að vetrarstarf Dagþjónustu aldraðra er hafið af fullum krafti Dagskrá alla daga frá kl. 9:00 til 15:00. Leikfimi, föndur, spil, bingó, boccia, vatnsleikfimi og bæjarferðir. Heiti potturinn í sjúkraþjálfun er opin frá kl. 8:30 - 9:15 þriðjudaga og fimmtudaga.
Lesa meira

Tónleikar með Helgu Bryndísi í Siglufjarðarkirkju

Fimmtudagskvöldið 25. september, mun Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari, halda tónleika í Siglufjarðarkirkju og hefjast þeir klukkan 20:00 
Lesa meira