Fimmtudaginn 9. október verða snjóflóðavarnargarðarnir á Siglufirði vígðir. Að því tilefni er íbúum boðið til eftirfarandi dagskrár.
16:00 - Tekið á móti umhverfisráðherra og öðrum gestum við „Bakkatjörn"
16:15 - Gengið eftir Hólavegi upp á og eftir garði 4 og áfram sem leið liggur suður eftir garði 3 og endað á „Amfiteater" ofan við garð 2.
Á göngunni verði staldrað við á útsýnisstöðum og veitt leiðsögn:
- Snjóflóðavá yfir Siglufirði - Tómas Jóhannesson
- Hönnun og hönnunarforsendur - Þorsteinn Jóhannesson
- Mótvægisaðgerðir - útivistar möguleikar og söguganga - Reynir Vilhjálmsson
17:00 - Dagskrá á „Amfiteater"
- Tónlistarflutningur
- Ávarp ráðherra
- Sr. Sigurður Ægisson „vígir" garðana
Íbúum er bent á að hlýr og góður klæðnaður og góðir skór auka ánægjuna. Ef svo ólíklega vill til að það verði mikið slagveður og slydda má reikna með breytingu á dagskrá sem auglýst verður síðar.