Fréttir

Kynningarfundur um átak í fjárfestingum á frumstigi

Fjallabyggð vekur athygli á kynningarfundi Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins sem haldinn verður á morgun miðvikudag 10. maí kl. 12:00. Kynningarfundurinn verður á zoom og fjallar um átak sem snýr að fjárfestingum í sprotafyrirtækjum sem komin eru stutt á veg í sinni þróun.
Lesa meira

Frístundastarf barna og unglinga í Fjallabyggð sumarið

Eins og síðustu ár mun Fjallabyggð birta rafrænt yfirlit/dagatal yfir afþreyingu og frístundastarf barna og unglinga í Fjallabyggð sumarið 2023. Þar með verða upplýsingar um það sem er í boði til afþreyingar og dægrastyttingar fyrir þann aldurshóp aðgengilegar á einum stað á heimasíðu Fjallabyggðar.
Lesa meira

Hátindur 60+ Erindi um gönguleiðir í Fjallabyggð og Fljótum ásamt göngu undir leiðsögn Björns Z. Ásgrímssonar

Laugardaginn 20. maí kl. 11:00 í Ráðhússal Fjallabyggðar, Gránugötu 23, Siglufirði mun Björn Z. Ásgrímsson flytja erindi um gönguleiðir í Fjallabyggð og Fljótum. Eftir erindið verður sameinast í bíla og ekið út í Fljót þar sem gengin verður gönguleiðin Hlöðnuvík - Hraunakrókur.
Lesa meira

Háskóli þriðja æviskeiðsins opinn kynningarfundur í boði Hátinds 60+

Hátindur 60+ Opinn Kynningarfundur mánudag 15. maí kl. 16:00 í Tjarnaborg. Mánudaginnn 15. maí nk. mun Birna frá U3A Reykjavík kynna Háskóla þriðja æviskeiðsins. Kynningarfundurinn verður haldinn í Tjarnarborg og hefst kl. 16:00.
Lesa meira

Vorhátíð 5. - 7. bekkjar Grunnskóla Fjallabyggðar, í Tjarnarborg 9. maí kl. 17:30

Vorhátíð 5.-7. bekkjar Grunnskóla Fjallabyggðar, verður haldin í Tjarnarborg í Ólafsfirði þriðjudaginn 9. maí kl. 17:30. Aðgangseyrir fyrir nemendur 1.-4. bekkjar og 8.-10. bekkjar er 500 krónur og fyrir 16 ára og eldri er aðgangseyrir 1500 krónur. Rúta fer frá grunnskólanum Norðurgötu kl. 17:00 og til baka að sýningu lokinni. Allir velkomnir!
Lesa meira

Menningarstarf í Alþýðuhúsið á Siglufirði hlýtur Eyrarrósina 2023

Eyrarrósin 2023, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins, var afhent í átjánda sinn í dag miðvikudaginn 3. maí, við hátíðlega athöfn á Hvammstanga. Frú Eliza Reid forsetafrú og verndari Eyrarrósarinnar afhenti verðlaunin.
Lesa meira

Nemandi í starfskynningu á bæjarskrifstofunni

Sveinn Ingi Guðjónsson, nemandi í 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar kom í starfskynningu á bæjarskrifstofuna í dag þriðjudaginn 2. maí.
Lesa meira

228. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar

228. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Tjarnarborg, Aðalgötu 13, Ólafsfirði 3. maí 2023 kl. 17.00
Lesa meira