Frístundastarf barna og unglinga í Fjallabyggð sumarið 2023
Eins og síðustu ár mun Fjallabyggð birta rafrænt yfirlit/dagatal yfir afþreyingu og frístundastarf barna og unglinga í Fjallabyggð sumarið 2023.
Þar með verða upplýsingar um það sem er í boði til afþreyingar og dægrastyttingar fyrir þann aldurshóp aðgengilegar á einum stað á heimasíðu Fjallabyggðar.
Horft er til afþreyingar eða námskeiða á sviði menningar, lista, íþrótta o.s.frv. Hægt verður að bæta inn í yfirlitið eftir þann tíma en gott að hafa sem mest tilbúið við birtingu yfirlitsins.
Upplýsingar sem þurfa að koma fram:
- Upplýsingar um aðila sem heldur námskeiðið/afþreyinguna
- Heiti og nánari lýsing námskeiðs/afþreyingar
- Tímasetning
- Staðsetning
- Aldur þátttakenda
- Þátttökukostnaður (t.d.æfingagjöld)
Ath! Ekki er átt við staka viðburði s.s. leiksýningar eða slíkt.
Þeir aðilar sem ráðgera að bjóða upp á afþreyingu eða aðra dagskrá fyrir börn og unglinga í sumar eru hvattir til að senda upplýsingar um það rafrænt á vef Fjallabyggðar (Slóð á eyðublað) fyrir 31. maí 2023, eða til Ríkeyjar Sigurbjörnsdóttur; rikey@fjallabyggd.is eða Lindu Leu Bogadóttur; lindalea@fjallabyggd.is, sem einnig veita frekari upplýsingar ef þörf krefur.
Eyðublað fyrir skráningu Auglýsing (pdf)