Af vef Nýsköpunar
Fjallabyggð vekur athygli á kynningarfundi Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins sem haldinn verður á morgun miðvikudag 10. maí kl. 12:00. Kynningarfundurinn verður á zoom og fjallar um átak sem snýr að fjárfestingum í sprotafyrirtækjum sem komin eru stutt á veg í sinni þróun.
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins beitir sér fyrir því að auðvelda nýsköpunarfyrirtækjum fjármögnun og í því skyni boðar sjóðurinn átak í fjárfestingum á frumstigi verkefna.
Hlekkur á fundinn hér https://www.facebook.com/events/608980817860423/
Nýsköpunarsjóður stendur nú fyrir átaki í fjárfestingu í sprotafyrirtækjum sem komin eru stutt á veg í sinni þróun. Markmið þessa fjárfestingaátaks er að koma að fjármögnun allt að 15 nýrra félaga á ári hverju, flýta mótunarskeiði þeirra, þróa trausta stjórnarhætti, og laða samhliða að aðra fjárfesta.
Hlutverk Nýsköpunarsjóðs er að stuðla að uppbyggingu og vexti íslensks atvinnulífs með fjárfestingum í sprotum og styðja við framgang nýsköpunar í samræmi við áherslur stjórnvalda.
Sjá nánar um átakið hér https://www.nyskopun.is/atak