Nemandi í starfskynningu á bæjarskrifstofunni

Sveinn Ingi Guðjónsson
Sveinn Ingi Guðjónsson

Sveinn Ingi Guðjónsson, nemandi í 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar mætti í starfskynningu á bæjarskrifstofuna í dag þriðjudaginn 2. maí. Í starfskynningunni fékk hann m.a. tækifæri til að kynna sér hin ýmsu störf á skrifstofunni t.d. hvernig á að flokka skjöl, hvernig á að skipuleggja fundi og hvernig maður fundar sem bæjarfulltrúi. Sveinn er nú þegar meðlimur í Ungmennaráðinu og var að koma í fyrsta skiptið í heimsókn á bæjarskrifstofurnar. 

Við starfsfólk bæjarskrifstofu þökkum Sveini Inga kærlega fyrir komuna en hann var mjög áhugasamur nemandi. 

Fréttatilkynning er skrifuð af Sveini Inga Guðjónssyni.