Fréttir

Seinni hunda- og kattahreinsun fimmtudaginn 17. nóvember

Dýralæknir verður í Fjallabyggð sem hér segir: Fimmtudaginn 17. nóvember • Námuvegi 11 Ólafsfirði 13:00 – 15:00 • Áhaldahúsinu Siglufirði 16:00 – 18:00
Lesa meira

Skipulagslýsing – upphaf vinnu við deiliskipulag lóða undir þjónustuhús og smáhýsi í Skarðsdal

Bæjarstjórn Fjallabyggðar leitar ábendinga á fyrirhuguðu deiliskipulagsverkefni fyrir þjónustuhús og smáhýsi í Skarðsdal. Í skipulagslýsingu, sem gefin er út af Basalt arkitektum fyrir framkvæmdaraðila, koma fram upplýsingar um forsendur, stefnu og fyrirhugað skipulagsferli. Tilgangur með útgáfu lýsingar er að tryggja aðkomu almennings og hagsmunaaðila að skipulagsferlinu á fyrstu stigum [meira]
Lesa meira

Íbúafundur miðvikudaginn 16. nóvember í Ráðhúsi Fjallabyggðar

Íbúafundur vegna deiliskipulags þjóðvegar í þéttbýli Siglufjarðar haldinn í Ráðhúsi Fjallabyggðar miðvikudaginn 16. nóvember kl. 16:30. Hörður Bjarnason verkfræðingur hjá Mannvit kemur til með að kynna drögin. Íbúar við þjóðveginn eru sérstaklega hvattir til að mæta og kynna sér skipulagið. Skipulags- og tæknifulltrúi Fjallabyggðar
Lesa meira

Ályktun um samgöngumál

Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti á 221. fundi sínum miðvikudaginn 9. nóvember sl. framlagða ályktun um samgöngumál í Fjallabyggð:
Lesa meira

221. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar

Bæjarstjórn Fjallabyggðar 221. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Tjarnarborg, Aðalgötu 16, Ólafsfirði 9. nóvember 2022 kl. 17:00
Lesa meira

Vel heppnaður aðalfundur hjá Karlakórnum í Fjallabyggðar

Aðalfundur Karlakórsins í Fjallabyggð var haldinn nú um helgina í húsnæði Hannes Boy (bláa húsið) á Siglufirði þar sem kosin var ný stjórn. Rætt var um framtíð kórsins, en kórstarfið hefur legið niðri frá því að Covid-19 faraldurinn hófst. Um 25 kórfélagar eru nú þegar búnir að staðfesta þátttöku sína og er það nú í höndum nýrrar stjórnar að ráða nýjan kórstjóra og kynna og efla kórstarfið enn frekar, en starfsemin mun hefjast formlega á nýju ári.
Lesa meira

„Opnar skrifstofur“ um allt Norðurland í nóvember

15. nóvember nk. verða starfsmenn Markaðsstofu Norðurlands á ferðinni í Fjallabyggð og verða með „opnar skrifstofu" í Tjarnarborg. Þangað geta allir komið sem vilja ræða málin, kynnast starfsemi MN betur eða kynna sína starfsemi fyrir MN.
Lesa meira

Brynja Baldursdóttir myndlistarmaður hefur hlotið nafnbótina Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2023

Brynja Baldursdóttir myndlistarmaður hefur hlotið nafnbótina Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2023. Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar samþykkti, á fundi sínum fimmtudaginn 3. nóvember 2022, að útnefna Brynju Baldursdóttur sem Bæjarlistamann Fjallabyggðar 2023
Lesa meira

Landsátak í sundi 1.- 30. nóvember

Taktu þátt í að synda hringinn í kringum landið. Allir þátttakendur fara í pott og geta unnið vegleg verðlaun. Skráðu þína sundvegalengd á syndum.is
Lesa meira

Jólagjöf til starfsmanna Fjallabyggðar 2022 - Gjafabréf

Fjallabyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Fjallabyggð sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins.
Lesa meira