Landsátak í sundi 1.- 30. nóvember

Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­band Ís­lands í sam­starfi við Sund­sam­band Ís­lands stend­ur fyr­ir landsátaki í sundi frá 1. – 30. nóv­em­ber 2022.

Synd­um er heilsu- og hvatn­ingar­átak sem höfð­ar til allra lands­manna. Mark­mið­ið með Synd­um er að hvetja al­menn­ing til þess að hreyfa sig oft­ar og meira í sínu dag­lega lífi og nota með­al ann­ars sund til þess.

Átak­ið var form­lega sett á lagg­irn­ar á sama tíma í fyrra og var þátt­tak­an þá gríð­ar­lega góð, en alls tóku lands­menn sig til og syntu heila 11,6 hringi í kring­um land­ið.

Synd­um - Landsátak í sundi

Synd­um – Landsátak í sundi, er fram­hald af Íþrótta­viku Evr­ópu. Markmið Íþrótta­viku Evr­ópu er að kynna íþrótt­ir og al­menna hreyf­ingu um alla Evr­ópu og sporna þannig við auknu hreyf­ing­ar­leysi með­al al­menn­ings.

Sund er fyr­ir alla, óháð aldri, bak­grunni eða lík­am­legu ástandi og er til­val­in þjálf­un­ar­að­ferð sem styrk­ir hjarta- og æða­kerf­ið, lungu og vöðva lík­am­ans en er einnig frá­bær og skemmti­leg tóm­stunda­iðja sem öll fjöl­skyld­an get­ur stund­að sam­an.

Synd­um sam­an í kring­um Ís­land. All­ir skráð­ir sund­metr­ar safn­ast sam­an og verða sýni­leg­ir á for­síðu synd­um.is. Þar verð­ur einnig hægt að sjá hversu marga hringi lands­menn hafa synt í kring­um Ís­land. Á síð­unni má jafn­framt finna skemmti­leg­an fróð­leik og upp­lýs­ing­ar um all­ar sund­laug­ar lands­ins

Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á synd­um.is og fara í Mín­ar skrán­ing­ar. Ein­falt er að velja sér not­end­a­nafn og lyk­il­orð og skrá synta metra.

Þau sem eiga not­end­a­nafn úr Lífs­hlaup­inu eða Hjól­að í vinn­una geta not­að það til að skrá sig inn. Þau sem skrá sig og taka þátt eiga mögu­leika á að verða dreg­in út og vinna veg­lega vinn­inga

Með kveðju frá stýrihópi um heilsueflandi samfélag í Fjallabyggð.