Jólagjöf til starfsmanna Fjallabyggðar 2022 - Gjafabréf

Fjallabyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Fjallabyggð sem hafa áhuga á að vera með í að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins.

Gjafabréfin virka sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Fjallabyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Fjallabyggðar gegn framvísun gjafabréfsins. Mælst verður til þess að handhafar gjafabréfa noti þau á tímabilinu 1. desember 2022 til og með 20. janúar 2023 en þau falla þó ekki úr gildi á árinu.  

Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að viðkomandi sé með starfsemi í Fjallabyggð. Skráningarfrestur er til og með 24. nóvember.

Tekið er við skráningu á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is eða rafrænt á þar til gerðu eyðublaði sem finna má hér. (Rafræn Fjallabyggð - umsóknir - stjórnsýslu- og fjármáladeild)

Nánari upplýsingar veitir Bragi Freyr Kristbjörnsson, deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála á netfangið bragi@fjallabyggd.is eða í síma 464 9100