Fréttir

Allir lesa hefst í dag, föstudaginn 27. janúar!

Í dag er blásið til leiks í hinum stórskemmtilega og æsispennandi lestrarlandsleik Allir lesa! Mörg sveitarfélög hvetja bæjarbúa til að mynda lið og skrá lestur í von um að í bænum leynist sigurliðið, og þar með öflugustu lestrarhestar landsins! Í ár er einnig er hægt að keppa sem einstaklingur og verður fróðlegt að sjá hver les mest allra Íslendinga. Vinningshafar fá gjafakort á bókamarkað félags íslenskra bókaútgefanda og stærstu liðin fá girnilegar kræsingar með lestrinum. Allir lesa auk þess sem landsleikurinn er frábært tækifæri til að minnka skjátíma og lesa eitthvað af þeim fjölmörgu frábæru bókum sem fylla hillur landsmanna og bókasafna landsins. Hægt er að hefja keppni hvenær sem er á tímabilinu 27. janúar til 19. febrúar og hefur fjöldi fólks þegar skráð sig til leiks á allirlesa.is.
Lesa meira

Ný og betri líkamsrækt í Ólafsfirði

Ný og betri líkamsrækt í Ólafsfirði var formlega vígð í gær 26. janúar kl. 16:30
Lesa meira

Hæfileikakeppni Grunnskólans 2017

Í gær stóð Grunnskóli Fjallabyggðar fyrir hæfileikakeppni fyrir nemendur í 1. - 7. bekk. Keppnin fór fram í Tjarnarborg og var keppnin mjög vel sótt en um 130 manns voru í salnum.
Lesa meira

Afhending menningarstyrkja 2017

Þegar Bæjarlistamaður Fjallabyggðar árið 2017 var formlega útnefndur þann 25. janúar sl., voru líkt og síðustu ár afhentir, með formlegum hætti, menningar- og rekstrarstyrkir til einstaklinga og félagasamtaka fyrir árið 2017. Styrkir sem með einum eða öðrum hætti munu styðja við bakið á menningarlífi Fjallabyggðar.
Lesa meira

Skammdegishátíðin 2017 hefst 26. janúar

Skammdegishátíðin hefst 26. janúar kl. 17:00 á Skammdegi Exhibition í Landsbjargarhúsinu á Ólafsfirði. Dagskráin á morgun og fram á kvöld er eftirfarandi:
Lesa meira

Ferðamannavegur; Kynningar- og fræðslufundur

Kynningar- og fræðslufundur í Ráðhúsi Fjallabyggðar þriðjudaginn 31. janúar kl. 17-19 Ferðamannavegur um Norðurland – Arctic Coastline Route Arctic Coastline Route er verkefni sem miðar að því að kortleggja ferðamannaveg sem liggur meðfram strandlengju Norðurlands, frá Langanesbyggð í Skagafjörð og er tilgangurinn að þróa nýtt aðdráttarafl fyrir norðurhluta Íslands fyrir innlenda og erlenda ferðamenn.  Verkefnið hófst árið 2016 og er fundinum ætlað að gefa innsýn inn í markmið, áherslur og fyrstu skref.  Tækifæri gefst til umræðna og áhrifa á verkefnið og er m.a. leitað hugmynda á endanlegt nafn leiðarinnar. Verkefnastjóri verkefnisins, Christiane Stadler; Dipl. Landfræðingur, verður með kynninguna og fer hún fram á ensku.
Lesa meira

Útnefning á bæjarlistamanni 2017

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar hefur valið Arnfinnu Björnsdóttur sem bæjarlistamann Fjallabyggðar 2017. Útnefningin fer fram í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði í dag miðvikudaginn 25. janúar kl. 18:00. Við sama tilefni verða afhentir menningarstyrkir Fjallabyggðar fyrir árið 2014. Allir velkomnir. Markaðs– og menningarnefnd.
Lesa meira

Frístundastyrkur hækkaður í 20.000 kr.

Við gerð fjárhagsáætlunar Fjallabyggðar fyrir árið 2017 var samþykkt að hækka frístundstyrk úr 9.000 kr. í 20.000 kr. Í framhaldi af því voru reglur um frístundastyrki endurskoðaðar og helsta breyting á reglunum felur í sér áðurnefnda hækkun en í stað þess að geta nýtt 9.000 krónur til að greiða niður þrjár tómstundir er hægt að nýta 20.000 kr. til að niðurgreiða tvær tómstundir. Um næstu mánaðarmót verða því sendar út tómstundaávísanir (2 x 10.000 kr.) til þeirra forráðamanna sem eiga börn á aldrinum 4 - 18 ára.
Lesa meira

Hæfileikakeppni grunnskólans

Fimmtudaginn 26. janúar kl. 17:30 verður Hæfileikakeppni grunnskólans haldin í Tjarnarborg. Keppendur koma úr 1. - 7. bekk og taka þátt ýmist einir eða í hóp. Rúta fer frá Norðurgötu kl. 17:05 og heim aftur að keppni lokinni.
Lesa meira

Ný og betri líkamsræktaraðstaða í Ólafsfirði

Á síðasta ári var hafist handa við að stækka líkamsræktina í Ólafsfirði. Stækkunin fól í sér að byggð var viðbygging, samtals um 102 m2. Sömuleiðis voru gerðar endurbætur á gömlu aðstöðunni með uppsetningu á nýju loftræstikerfi fyrir allt húsið. Einnig voru líkamsræktartæki meira og minna endurnýjuð.
Lesa meira