Sunnudaginn 12. okt. 2014 kl. 14:00 - 17:00 opnar Guðrún Pálína Guðmundsdóttir sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu
á Siglufirði sem ber titilinn Norðurátt.
Guðrún Pálína Guðmundsdóttir sýnir stórt akrylmálverk á dúk (160 x 3 m) og nokkur lítil (30 x 30 cm)
olíumálverk. Guðrún Pálína var bæjarlistamaður Akureyrar 2013 og dvaldi hálft ár í Berlín og er sýningin brot
af vinnu hennar þar.
Í málverkum sínum reynir hún að hafa alla teikningu sem einfaldasta og láta litina og kraft þeirra njóta sín sem best og
áferð efnisins.
Hún vann að tvenns konar málverkum í Berlín, annars vegar portrettmyndir og hinsvegar einhvers konar landslagsmyndir þar sem óblandaður ilturinn
flæðir um myndflötinn og blandar litatónana sjálfur, þegar hann rennur saman.
Guðrún Pálína hefur verið starfandi myndlistarmaður að framhaldsnámi loknu í Hollandi 1989. Hún hefur verið búsett og
starfandi á Akureyri síðan 1991 meðal annars sem framkvæmdastjóri Listasumars, starfrækt Gallerí + í Brekkugötu, er safnakennari við
Listasafnið á Akureyri og hefur setið í stjórn Myndlistafélagsins. þetta er hennar fyrsta sýning á Siglufirði.
FLÓAMARKAÐUR
Þennan sama sunnudag verður efnt til flóamarkaðs í sal Alþýðuhússins og Búðin verður opin í fyrsta sinn með litla
skúlptúra og lágmyndir eftir Aðalheiði S. Eysteinsdóttur.
Heitt á könnunni og léttar veitingar, allir velkomnir, en athugið að ekki er hægt að taka við greiðslukortum.
Allar nánari upplýsingar hjá Aðalheiði í síma 865-5091
Menningarráð Eyþings, Fjallabyggð og Fiskbúð Siglufjarðar eru bakhjarlar Alþýðuhússins.
Mynd eftir Guðrún Pálínu Guðmundsdóttur