Starfsmannahópur Leikskóla Fjallabyggðar heimsótti Berlín í apríl sl.

Starfsmannahópur Leikskóla Fjallabyggðar heimsótti Berlín í apríl sl. 

Það var þreytt en glatt starfsfólk sem komu heim frá Berlín eftir fjögra daga dvöl. Fullir af innblæstri og orku fyrir komandi verkefni. Starfsfólk skoðaði leikskóla, fóru á námskeið í útikennslu og nutu menningar Berlínarborgar.

Starfsfólk lýsti yfir mikilli ánægju með ferðina og sögðu hana hafa aukið þekkingu sína á útinámi og skapað ómetanlegar minningar með starfsfólki. "Þetta var einstök upplifun sem við munum seint gleyma. Það var frábært að kynnast samstarfsfólki sínu betur í svona skemmtilegu umhverfi," sagði, Björk Óladóttir einn þátttakandi ferðarinnar.

Það er ljóst að slík ferð hefur jákvæð áhrif á bæði starfsandann og vinnuárangur og verður hún vonandi ekki sú síðasta í röðinni.

Í skýrslu um ferðina er hægt að lesa nánar um þá skóla sem og námskeiðið sem starfsfólk fór á.