Skólaakstur fellur niður í dag

Kennsla 5.-10.bekkjar fer fram í starfstöðvum skólans samkvæmt óveðursskipulagi. Nemendur sem búsettir eru í Ólafsfirði mæta í grunnskólann við Tjarnarstíg og nemendur búsettir á Siglufirði mæta í grunnskólann við Norðurgötu ef foreldrar treysti þeim í skólann. 
Starfsfólk mætir í næstu starfsstöð.
Kennt verður samkvæmt óveðursskipulagi í 5.-10.bekk til kl. 12.00. Nemendur fara heim að loknum hádegismat. 
Nemendur í 1.-4.bekk mæta í skólann eins og venjulega ef foreldrar treysta þeim í skólann. 
Ef foreldrar treysta börnum sínum ekki í skólann þurfa þeir að láta vita af því til ritara skólans í síma 464-9150 eða á netfangið helga@fjallaskolar.is