Áætluð loftmengun miðvikudaginn 15. október. (Mynd: www.vedur.is)
Brennisteinsdíoxíðmengum frá eldgosinu í Holuhrauni hefur verið áberandi á Tröllaskaganum síðustu daga. Samband íslenskra
sveitarfélaga hefur gefið út leiðbeiningar varðandi hvernig bregaðst skuli við þessari loftmengun.
Foreldrar ungra barna og þeir sem eru með astma eða aðra öndunarfærasjúkdóma ættu sérstaklega að hafa varan á og fylgjast
með vel.
Leiðbeiningar frá Sambandi íslenskra sveitafélaga :
Á undanförnum vikum hefur loftmengandi gasefnið brennisteinsdíoxíð SO2 borist frá eldstöð í Holuhrauni norðan Vatnajökuls til
íbúa í mörgum sveitarfélögum og hefur styrkur efnisins stundum verið svo mikill að mælt er með mjög afgerandi varnaraðgerðum, svo
sem að halda sig innandyra, loka öllum gluggum, hækka hitastig innanhús o.þ.h.
Svo virðist að útbreiðsla brennisteinsdíoxíðs mun halda áfram um sinn og því er aðkallandi að huga að
upplýsingagjöf til almennings sem er einföld í nálgun, áreiðanleg og skiljanleg.
Brennisteinsdíoxíð er ertandi lofttegund vegna þess að það myndast brennisteinssýra þegar efnið kemst í snertingu við vatn,
jafnvel þó litlu magni sé, eins og t.d. á slímhimnum. Ekki er reynsla hér á landi af svo þrálátri loftmengun sem raun ber vitni.
Málið snertir flesta íbúa landsins, suma mjög mikið vegna nálægðar við eldstöðina. Upplýsingagjöf um málið hefur
ekki verið nægilega kerfisbundin og almenningur þarf að leita sér upplýsinga eftir fleiri en einni leið, t.d. með því að fara á
vefsíður opinberra aðila.
Mælingar á loftmengun eru ekki gerðar á öllum þéttbýlissvæðum og því þarf oft að meta út frá
næstu loftgæðamælistöð, sem getur verið á svæði þar sem engin loftmengun er, á sama tíma og hún er talsverð
hjá viðkomandi sem er að leita að leiðbeiningum um hvernig best sé að halda sig frá loftmengun. Sums staðar hefur heilbrigðiseftirlitið
frumkvæði að því að láta t.d. skóla og leikskóla vita ef loftmengun nálgast mikinn styrk.
Hér að neðan eru nokkur góð ráð um hvernig hægt er að nálgast upplýsingar um loftmengun. Til að kanna hvort ástæða er
til að gera varúðarráðstafanir er hægt að gera eftirfarandi:
1. Fara að morgni dags á vefsíðu um dreifingu loftmengunar og fylgjast með fram eftir degi ef ástæða er til:
http://www.vedur.is/vedur/spar/textaspar/oskufok/. Ef rennt er niður síðuna og
smellt á „nýjustu keyrslu" má fá mat á dreifingu loftmengunar u.þ.b. sólarhring fram í tímann.
Ef loftmengun verður óviðunandi á tilteknu svæði má búast við að almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra,
landlæknisembættið og fleiri opinberir aðilar gefi út viðvaranir.
Fólk getur verið misjafnlega viðkvæmt fyrir loftmengandi efnum. Þeim sem eru viðkvæmir fyrir áhrifum slíkra efna er ráðlagt að
fylgjast náið með spáum um dreifingu mengunarefna.
Gott er líka að hafa í huga að allt mat á loftmengunarhættu gildir fyrst og fremst fyrir fullorðið fólk. Ungabörn eru almennt
viðkvæmari fyrir loftmengun og ættu þau ekki vera utandyra, t.d. sofandi í barnavagni, ef spár um dreifingu mengunarefna gefa til kynna að mengunar sé
að vænta á tilteknu svæði.
Eftirfarandi aðilar hafa hlutverki að gegna í viðbrögðum við vá frá náttúrufyrirbærum sem eldgos eru:
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vegna samhæfingar aðgerða og tilkynningar til almennings ef vá er á ferðum. Vefsíða:
http://www.almannavarnir.is/
Umhverfisstofnun vegna loftgæðamælinga, upplýsinga um loftmengun, leiðbeiningar og tilkynningar til almennings um viðbrögð við loftmengun.
Vefsíða:
http://www.ust.is/einstaklingar/loftgaedi/maelingar. Hér má velja gasmælistöð og skoða loftgæði
liðandi stundar. Ekki þarf að spá mikið í mæligildum því með litavalinu er gefið til kynna núverandi ástand (grænn litur
= góð loftgæði, gulur litur = nálgast óviðunandi ástand, rauður litur = óviðunandi ástand).
Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga vegna loftgæðamælinga, leiðbeiningar og tilkynningar til almennings um viðbrögð við loftmengun. Sum
heilbrigðiseftirlit reka loftgæðamælistöðvar, t.d. í Reykjavík:
http://reykjavik.is/loftgaedi.