29.12.2022
Ný Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Fjallabyggðar hefur verið samþykkt í bæjarstjórn sveitarfélagsins annars vegar og hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hins vegar og öðlast hún þegar gildi. Markmið brunavarnaáætlunar er að tryggja að slökkvilið sé þannig mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þær áhættur sem eru til staðar í sveitarfélaginu.
Lesa meira
29.12.2022
Hilmar Símonarson kraftlyftingamaður var kosinn íþróttamaður Fjallabyggðar árið 2022.
Lesa meira
28.12.2022
Val á íþróttamanni ársins 2022 í Fjallabyggð fer fram í dag miðvikudaginn 28. desember kl: 2000 í Tjarnarborg.
Hátíðin er samstarfsverkefni UÍF og Kiwanisklúbbsins Skjaldar.
Lesa meira
22.12.2022
Bæjarstjórn Fjallabyggðar
224. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði 28. desember 2022 kl. 12.00
Lesa meira
22.12.2022
Bæjarfélaginu er gefinn frestur til 13. janúar nk. að senda ráðuneytinu tillögur um sérreglur.
Á fundi bæjarráðs sem haldinn var 20. desember sl. fól bæjarráð bæjarstjóra að boða hagsmunaaðila til opins samráðsfundar, þar sem aðilum verður gefinn kostur á að koma skoðunum sínum á framfæri.
Ráðgert er að halda fundinn í Tjarnarborg fimmtudaginn 5. janúar kl. 17:00.
Lesa meira
22.12.2022
Sigríður bæjarstjóri leit við í morgunkaffi hjá starfsmönnum Fjallabyggðarhafna í morgun og fór meðal annars yfir stöðu mála þar.
Við það tækifæri tók hún þessa ágætu mynd af þeim herramönnum.
Starfsmenn hafnarinnar senda sínar allra bestu hátíðarkveðjur um landið og miðin og þakka fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða með von um að nýja árið verði öllum fengsælt.
Lesa meira
21.12.2022
Þau leiðu mistök urðu í gær að hér á vefnum birtist frétt um frístundastyrki Fjallabyggðar sem var röng. Fréttin hefur verið tekin niður.
Ný frétt og réttar upplýsingar verða birtar milli jóla og nýars.
Bendum á að nýjar reglur um Frístundastyrki Fjallabyggðar 2023 eru aðgengilegar á vef Fjallabyggðar hér.
Lesa meira
16.12.2022
Fjallabyggð óskar eftir tillögum að nafni á nýja íbúðargötu á malarvellinum á Siglufirði. Skipulags- og umhverfisnefnd mun fjalla um tillögurnar í byrjun janúar. Skipulags- og umhverfisnefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum tillögum.
Lesa meira
16.12.2022
Á 223. fundi bæjarstjórnar þann 15. desember 2022 fór fram seinni umræða um fjárhagsáætlun Fjallabyggðar fyrir árið 2023. Var áætlunin samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
Lesa meira
16.12.2022
Bókun bæjarstjóra vegna fjárhagsáætlunar Fjallabyggðar
Lesa meira