Athöfn þar sem besta og efnilegasta íþróttafólk Fjallabyggðar verður verðlaunað fer fram í Tjarnarborg kl. 20.00 miðvikudaginn 28. desember nk.
Það eru Kiwanisklúbburinn Skjöldur og Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar sem standa að valinu, í samstarfi við íþróttafélög innan UÍF, og athöfninni sjálfri. Er hún öllum opin og er fólk hvatt til að mæta og fagna uppskeru ársins hjá íþróttahreyfingunni í Fjallabyggð.
Eftirtalið íþróttafólk er tilnefnt fyrir frammistöðu sína í ýmsum greinum og er sérstaklega óskað eftir viðveru þeirra:
Agnar Óli Grétarsson, Alex Helgi Óskarsson, Alexandra Ísold Guðmundsdóttir, Aron Hilmarsson, Árni Helgason, Brynja Sigurðardóttir, Dagný Finnsdóttir, Eiríkur Baldvinsson, Elsa Guðrún Jónsdóttir, Emma Hrólfdís Hrólfsdóttir, Finnur Mar Ragnarsson, Haukur Rúnarsson, Hilmar Símonarson, Hlynur Freyr Ragnarsson, Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir, Hrafnhildur Sverrisdóttir, Isabella Ósk Stefánsdóttir, Jóhann Már Sigurbjörnsson, Jón Frímann Kjartansson, Karen Helga Rúnarsdóttir, Kjartan Orri Johnson, Laufey Petra Þorgeirsdóttir, Marcin Kulesza, Margrét Hlín Kristjánsdóttir, Matthías Kristinsson, Natalia Perla Kulesza, Sigurbjörn Þorgeirsson, Sigurlaug Sara Kristjánsdóttir, Silja Rún Þorvaldsdóttir, Steingrímur Árni Jónsson, Svava Rós Kristófersdóttir, Svava Stefanía Sævarsdóttir, Sylvía Rán Ólafsdóttir, Sævar Þór Fylkisson,Sævar Gylfason, Tinna Hjaltadóttir, Tómas Ingi Ragnarsson, Þorsteinn Már Þorvaldsson.