Ungmennaráð Fjallabyggðar

42. fundur 07. febrúar 2025 kl. 10:30 - 11:30 Bylgjubyggð 2b, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Alex Helgi Óskarsson Aðalmaður
  • Hanna Valdís Hólmarsdóttir Aðalmaður
  • Víkingur Ólfjörð Daníelsson Aðalmaður
  • Steingrímur Árni Jónsson Aðalmaður
  • Sverrir Freyr Lúðvíksson Aðalmaður
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri
  • Salka Hlín Harðardóttir frístundafulltrúi
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála
Júlía Birna Ingvarsdóttir nemi á 2. ári í Tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands var gestur fundarins.

1.Ungmennaþing SSNE 2024

Málsnúmer 2411002Vakta málsnúmer

Dagana 14. og 15. október 2024 fór fram ungmennaþing SSNE í Þingeyjarsveit. Þetta var í fjórða sinn sem slíkt þing er haldið og er fulltrúum allra sveitarfélaga á starfssvæðinu boðið til þátttöku. Yfirmarkmið ungmennaþinganna hefur verið og er að valdefla ungt fólk, styrkja tengsl þeirra við hvert annað og efla samvinnu á milli sveitarfélaga. Þrjú ungmenni voru fulltrúar Fjallabyggðar á þinginu.
Lagt fram til kynningar
Nefndarmenn ungmennaráðs þeir Steingrímur Árni og Sverrir Freyr voru þátttakendur í þinginu í haust og sögðu frá hvernig upplifun þeirra var, m.a. að ungmennin hafi tekið virkan þátt í fjölbreyttum vinnustofum. Ein af þeim snéri að því að læra að útbúa erindi til sveitastjórna með tilheyrandi rökum og lærðu ungmennin að útbúa erindi til sinnar sveitarstjórnar. Unnið með samgöngur í sveitarfélögunum.
Tilgangur verkefnis var í raun tvíþættur, annars vegar að nota útfærslu á raundæmi til að hvetja ungmenni og sýna þeim hvernig hægt er að nýta lýðræðislega þátttöku til að hafa áhrif á eigið samfélag.
Einnig eru nefndarmenn sammála um að vinnustofa Lýðræðislestarinnar sem var á Ungmennaþinginu hafi verið mjög fróðleg og vill ungmennaráð endilega athuga hvort hægt væri að fá slíka vinnustofu eða fyrirlestur af þeim toga fyrir skólana í Fjallabyggð. Sölku Hlín frístundafulltrúa var falið að athuga með það.

2.Erindi frá Ungmennaþingi SSNE

Málsnúmer 2501009Vakta málsnúmer

Farið yfir erindi sem fulltrúar Fjallabyggðar á Ungmennaþingi SSNE sendu á Fjallabyggð og varðar umferðaröryggismál og málsmeðferð erindis til þessa.
Samþykkt
Erindið hefur verið tekið fyrir í Bæjarráði Fjallabyggðar svo og Skipulags-og umhverfisnefnd Fjallabyggðar þar sem bókað var að tillögur ungmennanna yrðu hafðar til hliðsjónar við endurskoðun umferðaröryggisáætlunar sveitarfélagsins. Ungmennaráð vill þakka Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar fyrir að taka jákvætt í erindið og hlakkar til að fá að fylgjast með framvindu vinnunnar.

3.Frístundastyrkir Fjallabyggðar - Reglur og skilyrði

Málsnúmer 2311057Vakta málsnúmer

Farið yfir reglur um frístundastyrki Fjallabyggðar 2025.
Lagt fram til kynningar
Frístundastyrkur Fjallabyggðar til barna á aldrinum 4 - 18 ára er nú 50.000 kr. fyrir árið 2025. Ungmennaráð vill koma á framfæri mikilvægi þess að sveitarfélagið sé með frístundastyrki sem þessa til barna og ungmenna og telja að langflestir séu að nýta styrkina.

Fundi slitið - kl. 11:30.