Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar

113. fundur 02. desember 2024 kl. 15:00 - 17:20 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Jón Kort Ólafsson aðalm.
  • Sigríður Guðmundsdóttir varaformaður
  • Ægir Bergsson formaður
  • Karen Sif Róbertsdóttir aðalm.
  • Ásta Lovísa Pálsdóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála

1.Styrkumsóknir 2025 - Menningarmál

Málsnúmer 2409054Vakta málsnúmer

Farið yfir umsóknir um styrki til menningatengdra verkefna.
Samþykkt
Markaðs- og menningarnefnd tók umsóknir um menningarstyrki til einstakra verkefna, fyrir árið 2025, til umfjöllunar. Markaðs- og menningarnefnd úthlutar styrkjum í þessum styrkflokki á fundi sínum í janúar 2025 og verður niðurstaða úthlutunar birt í kjölfarið.

2.Styrkumsóknir 2025 - Hátíðarhöld og stærri viðburðir í Fjallabyggð

Málsnúmer 2409057Vakta málsnúmer

Umsóknir um styrki til hátíðarhalda og stærri viðburða 2025 lagðar fram til umsagnar.
Vísað til bæjarráðs
Umsóknir um styrki til hátíðarhalda og stærri viðburða fyrir árið 2025 lagðar fram til kynningar og umfjöllunar. Markaðs- og menningarnefnd veitir umsögn um umsóknirnar til bæjarráðs sem úthlutar styrkjum til hátíðarhalda í upphafi nýs árs.

3.Styrkumsóknir 2025 - Rekstrarstyrkir til safna og setra.

Málsnúmer 2409056Vakta málsnúmer

Umsóknir um styrki til reksturs safna og setra lagðar fram til umsagnar.
Vísað til bæjarráðs
Umsóknir um rekstrarstyrki til safna og setra fyrir árið 2025 lagðar fram til kynningar og umfjöllunar. Markaðs- og menningarnefnd veitir umsögn um umsóknirnar til bæjarráðs sem úthlutar rekstrarstyrkjum til safna og setra í upphafi nýs árs.

Fundi slitið - kl. 17:20.