Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 16. fundur - 7. maí
Málsnúmer 1505004F
Vakta málsnúmer
-
Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 16. fundur - 7. maí
Markaðs- og menningarnefnd samþykkti á síðasta fundi sínum að auglýsa eftir aðilum til að sjá um 17. júní hátíðarhöldin. Ein umsókn barst frá fræðslu- og menningarmálanefnd Slökkviliðins í Ólafsfirði sem gerir ráð fyrir að hátíðarhöldin fari fram við Menningarhúsið Tjarnarborg og síðan sendu Aðalheiður S. Eysteinsdóttir og Örlygur Kristfinnsson inn hugmynd að dagskrá hátíðarhaldanna sem færu fram á Siglufirði.
Þar sem aðeins ein formleg umsókn barst samþykkir nefndin að fela fræðslu- og menningamálanefnd Slökkviliðsins í Ólafsfirði að sjá um hátíðarhöldin á þjóðhátíðardaginn.
Bókun fundar
Afgreiðsla 16. fundar markaðs- og menningarnefndar staðfest á 116. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
-
Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 16. fundur - 7. maí
Lögð fram skýrsla vinnuhóps um framtíðarsýn fyrir Menningarhúsið Tjarnarborg. Í skýrslunni er ítarleg greining á starfsemi hússins í dag ásamt tillögu að nýrri gjaldskrá og tillögum til eflingar á starfsemi hússins. Ægir bendir á að gerð hafi verið úttekt á hljóðkerfimálum Tjarnarborgar fyrir nokkrum árum.
Nefndin samþykkir tillögur vinnuhópsins um nýja gjaldskrá og vísar henni og skýrslunni í heild sinni til umfjöllunar bæjarráðs.
Bókun fundar
Afgreiðsla 16. fundar markaðs- og menningarnefndar staðfest á 116. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.