Fréttir

Sjómannadagshelgin

Sjómannafélag Ólafsfjarðar stendur fyrir glæsilegri dagskrá um næstu helgi. Meðal þess sem er boðið uppá eru leiktæki, frítt í bíó fyrir börn og unglinga, söngvarana Magnús Þór, Siggu Beinteins og Söngvaborg auk leikarans Björgvins Frans. Dagskráin hefst strax á föstudegi og stendur fram á sunnudagskvöld. Magnús Þór Sigmundsson heldur tónleika á föstudagskvöldið auk þess sem börnum og unglingum verður boðið frítt í bíó.
Lesa meira

Kæru Siglfirðingar

Á Sjómannadaginn 1. júní n.k. viljum við bjóða ykkur í heimsókn til Ólafsfjarðar.  Glæsileg skemmtidagskrá verður í boði Sjómannafélags Ólafsfjarðar. Dagskráin er nánar auglýst  í Tunnunni Boðið verður uppá ókeypis sætaferðir fram og til baka.  Ferðafélagið Trölli Ólafsfirði býður uppá skemmtilega skoðunarferð um Ólafsfjörð fyrir farþega. Farið verður frá Torginu Siglufirði kl. 11:30 og til baka frá Ólafsfirði milli 17:00 - 18:00.      
Lesa meira

Tvö lög frá Fjallabyggð í Sjómannalagakeppni

Fjallabyggð getur státað af tveimur lögum í sjómannalagakepnni Rásar 2 og Hátíð hafsins. Lagið mamma er flutt af Roðlaust og beinlaust, söngur er í höndum Magnúsar G. Ólafssonar og Sævars Sverrissonar.  Einnig er lagið Fullur sjór af síld, eftir Sigurð Ægisson, en Miðaldamenn sjá um flutning og er söngur í höndum Þorvaldar Halldórssonar og Gylfa Ægissonar. Hægt er að hlusta á lög kepnninnar á www.ruv.is/poppland og kjósa það lag sem þér þykir best.
Lesa meira

Styrkir til Fjallabyggðar hærri en við sögðum áður frá

Byggðastofnun hefur gengið frá styrkveitingum og hlutafjárframlögum vegna mótvægisaðgerða ríkistjórnarinnar til eflingar atvinnuþróunar og nýsköpunar 2008 og 2009. Í fyrri frétt okkar yfirsáust okkur tveir styrkir að upphæð 3.000.000 kr. hvor svo heildarstyrkupphæð til fyrirtækja í Fjallabyggð er því 25.250.000. Það má því segja að slagorð Fjallabyggðar "Fjallabyggð er frumkvöðull" eigi vel við. Alls voru 200 milljónir króna til úthlutunar, 100 milljónir fyrir hvort ár. Alls bárust 253 umsóknir samtals að fjárhæð 1.528. mkr. Alls hlutu 69 verkefni styrk. Nokkrar umsóknir eru til frekari skoðunar. Hæstu styrkina hlutu Þóroddur ehf. vegna uppbyggingar seiðaeldisstöðvar í Tálknafirði, JE-Vélaverkstæði ehf. Siglufirði, vegna þróunar á nýrri gerð af snekkju og Vélfag ehf. í Ólafsfirði til þróunar og smíði roðvélar, 5 milljónir hvert verkefni.
Lesa meira

Styrkur til Regnbogabarna

Nýlega afhenti Mogomusic ehf í Ólafsfirði og Þórarin Hannesson á Siglufirði, Regnbogabörnum 400.000 kr. að gjöf. Gjöfin er til komin vegna sölu á geislaplötunni Dyggðirnar sem inniheldur 15 lög eftir Þórarin Hannesson með textum eftir Herdísi Egilsdóttur. Textarnir eru úr bókunum Betri skapgerð sem Listfengi ehf. gefur út og eru m.a. notaðar í mörgum af grunn- og leikskólum landsins.
Lesa meira

Afmælisveisla á Siglufirði

Glæsilega afmælisveisla var á Siglufirði síðastliðin laugardag. Þar vara auðvitað verið að halda uppá 90 ára afmæli Siglufjarðar. Skipulögð dagskrá hófst kl. 11:00 með sýningu á vinnu nemenda í Grunnskóla Siglufjarðar og sýningu á verkum úr myndasamkeppni Rauðku.
Lesa meira

Golfklúbbur Ólafsfjarðar og Golfklúbbur Siglufjarðar gera með sér fríspilssamning

Golfklúbbarnir í Fjallabyggð hafa gert með sér svokallaða fríspilssamning. Um er að ræða samning þess eðlis að félagsmenn á öðrum hvorum staðnum geta spilað frítt á hinum vellinum ef þeir vilja.
Lesa meira

Framkvæmdir á lofti Sundlaugar á Siglufirði

Eins og fram hefur komið hér hjá okkur eru framkvæmdir í gangi á lofti sundlaugarinnar á Siglufirði og ganga framkvæmdir vel. Af gefnu tilefni viljum við benda á að það verður opið í ræktina, heita pottinn og sturtur á meðan að á framkvæmdum stendur. Áætlaður verktími er til 5. júlí.
Lesa meira

Afmælishátið

Eins og nær flestir í Fjallabyggð vita á að halda glæsilega afmælisveislu á Siglufirðir á morgun. Við hvetjum alla íbúa Fjallabyggðar til að koma og skemmta sér saman. Við minnum á ókeypis rútuferðir frá Ólafsfirði. Boðið verður uppá skipulagða skoðunarferð um Siglufjörð fyrir rútufarþega. Rútan fer frá Tjarnarborg kl. 11:30 og aftur heim kl. 17:30verðum því komin heim fyrir Eurovison Dagskráin
Lesa meira

Skólasvæði í Ólafsfirði

Hugmyndir að skipulagi fyrir skólasvæði í Ólafsfirði eru komnar inn á heimasíðuna. http://fjallabyggd.is/is/page/skipulag Þar er hægt að skoða greinagerð um skipulag skólasvæðis í Ólafsfirði, tillögu að óverulegri breytingu á staðfestu aðalskipulagi í Ólafsfirði og tillögur að deiliskipulagi fyrir skólasvæði í Ólafsfirði.    
Lesa meira