Vortónleikar kórs Akureyrarkirkju

Kór Akureyrarkirkju mun halda tvenna vortónleika laugardaginn 3. maí nk., í Dalvíkurkirkju kl 14:00 og í Ólafsfjarðarkirkju kl 17:00. Á efnisskránni eru m.a. íslensk dægurlög, gamlar dægurperlur og kirkjutónlist. Félagar úr kórnum syngja einsöng og dúetta. Aðgangseyrir er kr. 1.000, en því miður getum við ekki tekið greiðslukort. Nánari upplýsingar veitir Anna Jóna Guðmundsdóttir, formaður kórsins, í síma 899 1570