Vinnuskóli Fjallabyggðar 2015


Skráning í vinnuskóla er hafin. Þeir sem eru fæddir 1998, 1999, 2000 og 2001 geta skráð sig í Vinnuskóla Fjallabyggðar.
* Skráning fer fram hér á heimasíðunni eða á haukur@fjallabyggd.is.  Einnig er tekið við skráningum á bæjarskrifstofunni.

*Skilyrði er að viðkomandi eða a.m.k. annað foreldri hafi lögheimili í Fjallabyggð eða viðkomandi hafi stundað nám við Grunnskóla Fjallabyggðar í vetur.

Vinnufyrirkomulag skýrist þegar skráningu er lokið.
Hægt verður að tryggja þeim sem skrá sig fyrir 20. apríl að lágmarki eftirfarandi vinnu:
· Árg. 2001: 4 vikur ½ daginn byrja 8. júní.
· Árg. 2000: 5 vikur allan daginn mán-fim og f.h. föstudaga byrja 1. júlí
· Árg.1998 og 1999: byrja 8. júní og vinna 8 vikur allan daginn.

Ekki verður hægt að tryggja lágmarksvinnu fyrir þá sem skrá sig eftir að skráningarfresti lýkur.
Tímafjöldinn fer eftir skráningu og því jafnvel möguleiki á meiri vinnu.
Nánari upplýsingar verða birtar eftir 20. maí á heimasíðu Fjallabyggðar.

Nánari upplýsingar veitir Haukur Sigurðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi