Villa í heildaryfirliti styrkveitinga Fjallabyggðar fyrir árið 2022

Gönguskíðaæfing
Mynd: Guðný Ágústsdóttir
Gönguskíðaæfing
Mynd: Guðný Ágústsdóttir

Í frétt um styrkveitingar Fjallabyggðar árið 2022 misritaðist ein upphæð ásamt heildarupphæð þjónustusamninga við íþróttafélög um rekstur á íþróttasvæðum í eigu sveitarfélagsins. Rétt heildartala er kr. 14.300.000.- en þjónustusamningur við Skíðafélag Ólafsfjarðar nemur kr. 4.700.000.- ekki 5.700.000.- eins og misritaðist. 

Beðist er velvirðingar á þessu og hefur fréttin verið uppfærð ásamt yfirliti um heildarstyrki árið 2022

Styrkveitingar Fjallabyggðar 2022, heildarlisti (pdf)