Vilhjálmur ráðinn starfsmaður á Bókasafni Fjallabyggðar, Ólafsfirði.

Vilhjálmur Hróarsson
Vilhjálmur Hróarsson
Fyrir skemmstu var auglýst laust til umsóknar framtíðarstarf bókavarðar í Bókasafni Fjallabyggðar í Ólafsfirði. Um 50% starf er að ræða.  
Þrír sóttu um starfið og var Vilhjálmur Hróarsson ráðinn í starfið. Vilhjálmur hefur starfað við afleysingar á safninu frá því í júlí 2013. Hans helstu störf eru afgreiðsla við útlánaborðið ásamt hefðbundnum störfum bókavarða. Er Vilhjálmur boðinn velkominn til starfa hjá Fjallabyggð.