Föstudaginn 25. ágúst nk. kl. 16:00 mun ný viðbygging við Menntaskólann á Tröllaskaga í Ólafsfirði verða vígð.
Dagksrá:
- Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri Fjallabyggðar býður gesti velkomna
- Ávarp: Steinunn María Sveinsdóttir formaður bæjarráðs
- Ávarp: Lára Stefánsdóttir skólameistari Menntaskólans á Tröllaskaga
- Ávarp: Kristján Þór Júliusson mennta- og menningarmálaráðherra
- Formleg opnun nýbyggingar: Kristján Þór Júlíusson mennta- og menningarmálaráðherra og Kristinn G. Jóhannsson listmálari og fyrrverandi skólastjóri Gagnfræðaskóla Ólafsfjarðar
Allir velkomnir.