Viðtalstími bæjarfulltrúa Fjallabyggðar á Siglufirði 28. október kl. 16:30

Bæjarstjórn Fjallabyggðar býður upp á viðtalstíma með bæjarfulltrúum einu sinni í mánuði og var fyrsti fundur haldinn 28 janúar sl.

Fundirnir verða haldnir síðasta mánudag hvers mánaðar, til skiptis á Siglufirði og í Ólafsfirði og eru íbúar Fjallabyggðar hvattir til að koma og hitta bæjarfulltrúa og ræða málefni sveitarfélagsins.

Næsti viðtalstími bæjarfulltrúa verður í dag mánudaginn 28. október að Gránugötu 24, Siglufirði kl. 16:30-17:30.
Til viðtals verða bæjarfulltrúarnir Ingibjörg S. Jónsdóttir, Særún Hlín Laufeyjardóttir og Tómas Atli Einarsson

 

             

Ingibjörg S. Jónsdóttir             Særún Hlín Laufeyjardóttir     Tómas Atli Einarsson

 

 Dagatal 2019