Viðtalstími bæjarfulltrúa Fjallabyggðar á Siglufirði 26. ágúst kl. 16:30

Bæjarstjórn Fjallabyggðar býður upp á viðtalstíma með bæjarfulltrúum einu sinni í mánuði og var fyrsti fundur haldinn 28 janúar sl.

Fundirnir verða haldnir síðasta mánudag hvers mánaðar, til skiptis á Siglufirði og í Ólafsfirði og eru íbúar Fjallabyggðar hvattir til að koma og hitta bæjarfulltrúa og ræða málefni sveitarfélagsins.

Næsti viðtalstími bæjarfulltrúa verður í dag mánudaginn 26. ágúst að Gránugötu 24, Siglufirði kl. 16:30-17:30.
Til viðtals verða bæjarfulltrúarnir Helga Helgadóttir,  Ingibjörg G. Jónsdóttir og Særún Hlín Laufeyjardóttir.

 

 

                     

    Helga Helgadóttir              Ingibjörg G. Jónsdóttir               Særún Hlín Laufeyjardóttir    

 

 Dagatal 2019