Viðburðadagatal Fjallabyggðar

Frá einum af viðburðum í Fjallabyggð.
Frá einum af viðburðum í Fjallabyggð.
Í byrjun janúar var auglýst á heimasíðu Fjallabyggðar eftir viðburðum í sveitarfélaginu á þessu ári. Búið er að taka saman alla innsenda viðburði í eitt skjal, Viðburðadagatal Fjallabyggðar. Hægt er að nálgast viðburðadagatalið hér á heimasíðunni undir útgefið efni.
Viðburðadagatalið er hugsað sem lifandi plagg og eflaust á eitthvað eftir að bætast inn á þetta.

Vakin er athygli á því að beðið er eftir staðfestingu á dagsetningu tónlistar- og menningarhátíðar unga fólksins, Ólæti.