Viðburða- og menningardagskrá Fjallabyggðar.

Í vinnslu er að taka saman í eitt skjal yfirlit yfir alla viðburði í Fjallabyggð á árinu 2014 með yfirskriftinni "Viðburða- og menningardagskrá Fjallabyggðar". 
Markaðs- og menningarfulltrúi heldur utan um þessa vinnu og óskar eftir því að fá sendar upplýsingar frá stofnunum, félagasamtökum, verslunar- og þjónustufyrirtækjum og einstaklingum um alla áhugaverða viðburði sem verða í Fjallabyggð á árinu. Fyrirhuguð útgáfa á dagskránni verður um mánaðarmótin janúar/febrúar. 
Markmiðið er að vekja athygli á því mikla og fjölbreytta menningarlífi sem er í sveitarfélaginu.
Óskað er eftir því að upplýsingar verði sendar á netfangið kristinn@fjallabyggd.is og í síðasta lagi sunnudaginn 19. janúar n.k.