Vetrarleikar UÍF

Frá skíðagönguæfingu í Ólafsfirði
Frá skíðagönguæfingu í Ólafsfirði

Árlegir Vetrarleikar UÍF hefjast í dag, föstudaginn 26. febrúar og standa þeir til 6. mars. Sem fyrr munu íþrótta- og ungmennafélögin í Fjallabyggð bjóða upp á fjölbreytta hreyfingu og viðburði þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Dagskrá leikanna hefur nú litið dagsins ljós og verður fjöldi viðburða og opinna æfinga hjá íþrótta- og ungmennafélögum inna UÍF eins og sjá má á dagskránni hér að neðan.

Vetrarleikar 2016
26. feb.
Kl. 18:00 Mót í sprettgöngu (Skicross) hjá Skíðafélagi Ólafsfjarðar.
Kl. 19:00 Siglómótið í blaki í íþróttahúsinu á Siglufirði.
27. feb.
Kl. 8:00 – 18:00 Siglómótið í blaki í íþróttahúsunum í Ólafsfirði og á Siglufirði. Fjöldi liða tekur þátt. Allir velkomnir að horfa á og hvetja.
Kl. 11:00 Bikarmót í hefðbundinni göngu í Ólafsfirði.
Kl. 13:00 Fjarðargangan (skíðaganga) í Ólafsfirði.
Kl. 11:00 – 16:00 Leikjabraut og húllumhæ í Skarðinu á Sigló á vegum SSS. (5. mars ef veður verður ekki hagstætt þann 27. febrúar)
28. feb. 
Kl. 13:00 Bikarkeppni í skíðagöngu (frjáls aðferð) í Ólafsfirði.
29. feb. 
Frítt í sund og rækt í íþróttamiðstöðvum Fjallabyggðar.
1. mars
Kl. 10:00 Opin æfing í boccia hjá Snerpu í íþróttahúsinu á Siglufirði.
Kl. 17:00 - 18:00 Opið fótboltahús í Ólafsfirði á vegum KF.
2. mars
Kl. 15:45 – 18:45 Opnar æfingar í fimleikum hjá Umf Glóa í Ólafsfirði.
3. mars
Frítt í sund og rækt í íþróttamiðstöðvum Fjallabyggðar.
Kl. 16:00 -18:00 Opnar æfingar í badminton hjá TBS á Siglufirði.
Kl. 20:00 Ljóðakvöld í Ljóðasetrinu á Siglufirði á vegum Umf Glóa.
4. mars
Kl. 11:00 Opin æfing í boccia hjá Snerpu í íþróttahúsinu á Siglufirði.
Kl. 16:00 – 17:00 Opið fótboltahús á Siglufirði á vegum KF.
5. mars
Ólafsfjarðarmót í svigi.
6. mars
Kl. 15:00 Myndlistarsýning nemenda í 1. – 4. bekk á Siglufirði og sögusýning Umf Glóa í Bláa húsinu á Sigló. Útileikir og snjókallagerð ef veður leyfir.

- Opnar æfingar hjá yngri flokki Skíðafélags Siglufjarðar (1.– 4. bekkur) alla leikana
- Opnar æfingar hjá Skíðafélagi Ólafsfjarðar í göngu og alpagreinum alla leikana
- Opnar æfingar hjá KF alla leikana

Nánari upplýsingar á Facebókarsíðu leikanna.