Vantar þig aukavinnu með námi eða annarri vinnu?

Hefur þú áhuga á að vinna fjölbreytta og skemmtilega vinnu á góðum vinnustað?  
Okkur á Lindargötu 2, vantar starfsmann á kvöld-/ og helgarvinnu.

Æskilegt er að viðkomandi:

  • Hafi bílpróf
  • Sé stundvís
  • Sé tilbúin að tileinka sér nýjungar og
  • tilbúin að koma til móts við sértækar stuðningsþarfir
  • Geti hafið störf sem fyrst

Skilyrði er að viðkomandi:

  • Hafi hreint sakavottorð skv. Lögum um þjónustu við fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
  • Sýni gagnkvæma virðingu og umhyggju í starfi.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Sveitarfélaga og Starfsgreinasambands Íslands.

Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Bryndísi forstöðuþroskaþjálfa í síma 866-1976 eða bryndis@fjallabyggd.is