Útnefning íþróttamanns Fjallabyggðar 2021 verður rafræn

Útnefning íþróttamanns Fjallabyggðar 2021 verður rafræn.

Athöfnin þar sem íþróttamaður Fjallabyggðar verður útnefndur og gerð verður grein fyrir vali á besta og efnilegasta íþróttafólki hverrar greinar verður rafræn í ár og send út á facebook síðu UÍF.
 
Athöfnin fer fram í Kiwanissalnum á Siglufirði miðvikudaginn 9. febrúar kl. 20.30. Þar verða einungis viðstaddir þeir sem tilnefndir eru í einstökum íþróttagreinum ásamt boðsgestum og þeim sem koma að framkvæmd athafnarinnar.

Það eru Kiwanisklúbburinn Skjöldur og Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar sem standa að athöfninni líkt og undanfarin ár.
 
Áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með á facebook síðu UÍF í kvöld kl. 20.30.