Í gær, fimmtudaginn 17. mars var Aðalheiður S. Eysteinsdóttir útnefnd bæjarlistamaður Fjallabyggðar árið 2022. Er það í 13. sinn sem bæjarlistamaður er útnefndur í Fjallabyggð.
Athöfnin fór fram í menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði og voru á sama tíma afhendir formlega styrkir til menningarmála og styrkir til hátíðarhalda fyrir árið 2022.
Vel var mætt á athöfnina. Ólafur Stefánsson formaður markaðs- og menningarnefndar setti hátíðina og Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi flutti ávarp, afhenti styrkina ásamt Ólafi og bæjarlistamanni viðurkenninguna.
Í ár var úthlutað styrkjum að upphæð kr. 5.750.000.- og skiptast þeir þannig: Í flokki einstakra menningartengdra verkefna kr. 2.700.000.- og í flokknum styrkir til hátíðahalda kr. 3.050.000.
Við athöfnina voru flutt glæsileg tónlistaratriði. Fram komu dúettinn Edda Björk Jónsdóttir sópran og Hörður Ingi Kristjánsson sem lék á píanó. Fluttu þau tvö lög. Þá komu einnig fram Stúlli og Danni, Sturlaugur Kristjánsson og Daníel P. Daníelsson og fluttu þeir einnig tvö lög.
Að lokinni athöfn bauð Fjallabyggð gestum upp á léttar veitingar.
Fjallabyggð óskar styrkhöfum velfarnaðar í þeim verkefnum sem framundan eru og Aðalheiði innilega til hamingju með nafnbótina Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2022.
Myndir á athöfninni tók Albert Gunnlaugsson og veitingar voru frá Aðalbakaríi á Siglufirði.
Styrkhafar 2022
|
|
Edda Björk Jónsdóttir og Hörður Ingi Kristjánsson |
Stúlli og Danni |