Útivistarfólk hugi að aðstæðum, veðri og skoði spár um snjóflóðahættu

Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hefur sent eftirfarandi tilkynningu út.

Mikið hefur snjóað víða um land undanfarna daga og ljóst að margir hugsa sér gott til glóðarinnar varðandi útivist. Í ljósi þess viljum við vekja athygli á spá um snjóflóðahættu frá Veðurstofunni sem má sjá nánar hér: https://www.vedur.is/ofanflod/snjoflodaspa/

Veðurstofan bendir á að talsvert hefur bætt í snjó á norðurhelmingi landsins, frá Vestfjörðum að Austfjörðum, en lítill nýr snjór er sunnan heiða. Óvissustig vegna snjóflóðahættu hefur verið í gildi á Norðurlandi, á norðanverðum Vestfjörðum og Austfjörðum og á þeim svæðum hafa fallið breið flekaflóð. Þessi flóð gefa vísbendingar um viðvarandi veik lög og er varað við ferðum í brattlendi eða undir bröttum hlíðum þar sem snjór hefur safnast. Þótt lítill nýr snjór sé á sunnanverðu landinu þá eru sumstaðar óstöðugir vindflekar í suðurvísandi hlíðum sem geta verið varasamir fyrir fólk á ferð í brattlendi.

Skíða-, útivistar- og vélsleðafólk er hvatt til þess að fara varlega næstu daga sé farið til fjalla og gæta vel að aðstæðum áður en haldið er af stað.

Tilkynningin er aðsend.