Útboð – ræsting Leikskóli Fjallabyggðar, Ólafsfirði

Leikskólinn í Ólafsfirði
Leikskólinn í Ólafsfirði

Umhverfis- og tæknideild Fjallabyggðar fyrir hönd fræðslu- frístunda- og menningarmáladeildar Fjallabyggðar óskar eftir tilboðum í reglulega ræstingu og sumarhreingerningu í Leikskóla Fjallabyggðar í Ólafsfirði samkvæmt útboðslýsingu. 
Heildarfjöldi fermetra í útboðinu er 379,2 m².

Reiknað er með að ræsting á grundvelli útboðsins hefjist þann 2. janúar 2017 og að gerður verði verksamningur um verkið til þriggja ára, eða til 31. desember 2019.

  • Vettvangsskoðun: Föstudaginn 9. desember 2016
  • Opnunartími tilboða: Mánudaginn 19. desember kl. 11:00
  • Opnunarstaður tilboða er: Ráðhús Fjallabyggðar, 2. hæð Gránugötu 24, 580.

Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstofu Fjallabyggðar að Gránugötu 24 á Siglufirði frá og með 7. desember 2016 gegn gjaldi kr. 2.000,-.

Allar nánari upplýsingar veitir Ármann V. Sigurðsson

Netfang: armann@fjallabyggd.is

Sími: 464 9100