Útboð – Ræsting í stofnunum Fjallabyggðar á Siglufirði

Fjallabyggð óskar eftir verðtilboðum í ræstingu sem hér segir:

  1. Í reglulega ræstingu og sumarhreingerningu í Leikskóla Fjallabyggðar, starfsstöð Siglufirði, Leikskála samkvæmt útboðslýsingu.
    Heildarfjöldi fermetra í útboðinu er 765,7 m².

  2. Í reglulega ræstingu ásamt sérverkum í Grunnskóla Fjallabyggðar, starfsstöð Siglufirði, samkvæmt útboðslýsingu.
    Heildarfjöldi fermetra í útboðinu er 1405,7, m².

  3. Í reglulega ræstingu í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Siglufirði samkvæmt útboðslýsingu.
    Heildarfjöldi fermetra í útboðinu er 672 m².

Tilboðsgjöfum býðst annars vegar að skila inn tilboði í hverja verkeiningu fyrir sig, eða tilboði í allar verkeiningar með sérstakri tilboðsskrá.

Reiknað er með að ræsting á grundvelli útboðsins hefjist þann 3. mars 2025 að gerður verði verksamningur um verkið til þriggja ára, eða til 29. febrúar 2028 með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum um eitt ár.

Vettvangsskoðun þriðjudagur 13. janúar 2025

  • Leikskóli Fjallabyggðar kl. 11:00.
  • Ráðhús Fjallabyggðar kl. 13:00
  • Grunnskóli Fjallabyggðar kl. 14:00

Opnunartími tilboða: Mánudagur 20. janúar 2025 kl. 11:00.

Opnunarstaður tilboða er: Ráðhús Fjallabyggðar, 2. hæð Gránugötu 24, 580 Siglufirði.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt og þarf ósk um það að berast á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is.

Tilboðum og tilskildum gögnum skal skilað með rafrænum hætti á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is fyrir kl. 11:00 mánudaginn 20. janúar 2025.

Verðtilboð skal auðkennt svo:

  • FJAL-2025-1: Útboð: Ræsting fyrir Grunnskóla Fjallabyggðar, starfsstöð Siglufirði“
  • FJAL-2025-2: Útboð: Ræsting fyrir Leikskóla Fjallabyggðar. Leikskálar Siglufirði“
  • FJAL-2025-3: Útboð: Ræsting fyrir Ráðhús Fjallabyggðar, Siglufirði“


Útboðið er auglýst á http://www.utbodsvefur.is/

Allar nánari upplýsingar veitir Ríkey Sigurbjörnsdóttir
Netfang: rikey@fjallabyggd.is
Sími: 464 9100