Margrét H. Blöndal opnar sýningu í Kompunni Alþýðuhúsinu á Siglufirði þriðjudaginn 10. júní 2014, kl.
17.00. ÚT er innsetning unnin beint í Kompu Alþýðuhússins á Siglufirði en
þar hefur Margrét dvalið undanfarna viku.
Boðið er uppá léttar veitingar og allir velkomnir.
Sýningin stendur til 2. júlí.
Setur á varir stút
kytra verður hvelfing
eitt eilífðarinnar æðablik
ÚT
Margrét H. Blöndal er fædd árið 1970 í Reykjavík. Hún lærði í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og
að auki í Mason Gross School of Arts í Rutgers háskólanum í New Jersey í Bandaríkjunum þaðan sem hún útskrifaðist
árið 1997. Hún hefur undanfarin ár haldið einkasýningar í Galerie Thomas Fischer, Berlín, Listasafni Reykjavíkur, Fort Worth Contemporary Arts
í Texas í Bandaríkjunum, Mother´s Tankstation í Dublin á Írlandi og í galleríi Nicolas Krupp í Basel í Sviss.
Margrét átti verk á hinni alþjóðlegu stórsýningu Manifasta 7 á Ítalíu árið 2008 og tók þátt
í Momentum tvíæringnum í Moss, Noregi árið 2011. Hún var tilnefnd til Sjónlistaverðlaunanna tvisvar sinnum og hefur hlotið
viðurkenningar úr sjóði Richards Serra, Guðmundu S. Kristinsdóttur og Laurenz Haus Stiftung í Sviss
Kompan er opin daglega kl. 14.00 – 17.00 eða þegar skiltið er úti. Einnig eftir samkomulagi við Aðalheiði í síma 865-5091.