Uppskerutónleikar vegna Nótunnar

Tónskóli Fjallabyggðar verður með tónleika í Menningarhúsinu Tjarnaborg fimmtudaginn 20. febrúar kl. 17:00. Fram koma u.þ.b 20 af nemendum skólans.  
Þrír dómarar verða í salnum og velja áfram þau atriði sem munu taka  þátt í keppninni fyrir hönd Tónskólans í Nótunni sem verður í Hofi 15. mars. Lokahátíð Nótunnar verður síðan í Eldborgasal Hörpu 23. mars.
Allir velkomnir.