Trilludagar á Siglufirði 27. júlí 2019 - Dagskrá

Á Trilludögum finna allir eitthvað við sitt hæfi. Gestum verður boðið á sjóstöng og í útsýnissiglingu út á fjörðinn fagra. Kiwanismenn standa grillvaktina þar sem öllum verður boðið að smakka dýrindis fisk beint úr hafi. Skemmtileg afþreying verður fyrir börnin þegar Húlladúllan mætir á svið og auðvitað verður hoppukastalinn á svæðinu. Tónlistin mun svo óma af Trillusviði yfir daginn sem endar á Bryggjuballi um kvöldið fyrir alla fjölskylduna

Trilludagur 27. júlí 

kl. 10:00 - 16:00         Frítt á sjóstöng fyrir alla fjölskylduna. Vesti og sjóstangir um borð.

Frítt á sjóstöng og útsýnissiglingu út á fjörðinn fagra fyrir alla fjölskylduna.
Veiðistangir og beita verða um borð. Allir koma í land með fisk á grillið.

Allir velkomnir að hafa með sína eigin veiðistöng. 

kl. 10:00 - 16:00         Grill á hafnarsvæðinu.
Kiwanis menn á Siglufirði standa við götugrillið frá því fyrsta trilla leggur af stað þar til sú síðasta kemur í land.
Þegar komið er að landi er gert að aflanum af fagfólki og hann síðan grillaður. Gestir fá svo að smakka. Boðið er upp á salat með fisknum.

Kl. 10:00-16:00           Grill, fjör og tónlist á hafnarsvæðinu allan daginn

  • Fjölskyldugrill; fiskur, pylsur og drykkur fyrir alla fjölskylduna
  • Stúlli og Danni
  • Tvíburarnir Þorvaldssynir
  • Hoppukastali fyrir káta krakka
  • Húlladúllan mætir með nýja sýningu sem hentar allri fjölskyldunni þar sem tvinnað verður saman sirkus og vísindum. Boðið upp á húlahringi og húlafjör fyrir alla krakka. www.hulladullan.is
  • Síldargengið fer rúnt um bæinn á gamla vörubílnum endar svo við Roaldsbrakka þar sem slegið verður upp síldarsöltun og bryggjuballi eins og þeim einum er lagið.

Við klárum svo þennan frábæra fjölskyldudag með Trilluballi á bæjarbryggjunni þar sem Landabandið mun halda uppi Trilludagsstemningu fram eftir kvöldi.

Eitthvað  áhugavert að gerast alla Trilludagshelgina fyrir alla fjölskylduna

  • Málverka- og handverkssýningar
  • Söfn og setur verða opin
  • Veitingastaðir með eitthvað gott á matseðli
  • Barnaskemmtun – Leikhópurinn Lotta mætir
  • Ljóðlist og kveðskapur
  • Kvæðaskapur
  • Lifandi viðburðir á söfnum og veitingahúsum
  • Stjórnin með tónleika á Rauðku
  • Siglufjarðarkirkja - Tvennir tónleikar
  • Leiktæki fyrir börnin og fleira og fleira

Dagskrá helgina 26. -28. júlí