Steindór Andersen á tónleikum með Sigurrós.
Landsmót kvæðamanna fer fram á Siglufirði um komandi helgi. Hluti af dagskrá landsmótsins eru tónleikar í Bátahúsinu
á föstudagskvöldið. Eftirfarandi tilkynning var að berast frá skipuleggjendum landsmótsins:
Auk þess að vænta má góðrar almennrar aðsóknar á tónleika Steindórs Andersen og Hilmars Arnar Hilmarssonar í
Bátahúsinu á föstudag kl. 20.00 – þá er framhaldsskóla- og grunnskólanemendum Fjallabyggðar boðið sérstaklega á
tónleikana.
Steindór hefur verið kallaður frægasti kvæðamaður í heimi. Um leið og í því felst svolítil glettni þá
er það ekki síður í alvöru sagt. Steindór ferðaðist víða um jarðarkringluna með hljómsveitinni Sigurrós, kom fram
á tónleikum hennar og flutti jafnan nokkur kvæðalög við undirleik þeirra Sigurrósarmanna – af því öðlaðist hann
fræg.
Með þessu boði vill framkvæmdastjórn Landsmóts kvæðamanna kynna ungu fólki hinn dásamlega þjóðlagaarf okkar og
eru allir nemendur í Fjallabyggð, hvort sem þeir eru í verkfallsfríi eða ekki, hvattir til að mæta á tónleikana. Bent skal á að
12 ára börn og yngri verða að vera í fylgd fullorðinna.