Tilkynning til félagsmanna í Einingu-Iðju

Mynd: Eining-Iðja
Mynd: Eining-Iðja
Vegna útgreiðslu úr félagsmannasjóði Einingar-Iðju.
 

Félagsmenn Einingar-Iðju sem starfa hjá eða hættu störfum hjá Fjallabyggð á síðasta ári (2020), ATHUGIÐ!

Allir félagsmenn sem starfa eða störfuðu hjá Fjallabyggð á tímabilinu frá 1. febrúar 2020 til 31. desember 2020 eiga að fá greitt úr félagsmannasjóði 1. febrúar nk. Forsenda þess að hægt verði að greiða úr sjóðnum er að Eining-Iðja hafi kennitölu, bankaupplýsingar, síma og netfang félagsmanna. Einfaldast er að fylla út þetta rafræna eyðublað.
Einnig er hægt að hafa samband við Rut hjá Einingu-Iðju sem fyrst til að veita umbeðnar upplýsingar. Sími 460 3600 eða netfang rut@ein.is 

Í síðasta kjarasamningi við sveitarfélögin var samið um og stofnaður sérstakur félagsmannasjóður. Atvinnurekandi greiðir mánaðarlegt framlag í sjóðinn sem nemur 1,5% af heildarlaunum félagsmanna og er greitt úr sjóðnum 1. febrúar ár hvert.