Tilkynning frá Tæknideild Fjallabyggðar og Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra

Íbúar við Hlíðarveg, Hornbrekkuveg og Túngötu í Ólafsfirði þurfa að halda áfram að sjóða neysluvatn.

Búið er að staðfesta að mengunin sé bundin við vatnsbólið í Brimnesdal og hefur Veitustofnun Fjallabyggðar einangrað bólið frá veitunni að undanskildum ofangreindum götum.

Tilkynning hefur verið borin út í öll hús við  Hlíðarveg, Hornbrekkuveg og Túngötu í Ólafsfirði.

Neysluvatn í öðrum götum en taldar eru upp hér að ofan er ómengað og því hæft til neyslu.

Flestar E. coli bakteríur eru skaðlitlar, en ef E. coli finnst í neysluvatni, þá bendir það til þess að hættulegar bakteríur geti leynst í vatninu. Íbúum við ofangreindar götur er því ráðlagt sem varúðarráðstöfun að sjóða vatnið. Veitustofnun Fjallabyggðar hefur nú þegar hafið vinnu við endurbætur.