„Think Rural, Think Digital, Think Ahead!“ Hakkaþon NORA 2021 19.-21. mars

Nú á tímum lokana, ferðatakmarkana og heimavinnu er kannski erfitt að hugsa fram á við og stefna að alþjóðlegu samstarfi. Því vill NORA breyta með því að halda rafrænt hakkaþon fyrir ungt fólk á norður-Atlantshafssvæðinu.

Hakkaþonið ‘Think Rural, Think Digital, Think Ahead!’ verður haldið dagana 19. til 21. mars og markmiðið er að fá ungt fólk frá Færeyjum, Íslandi, Grænlandi, Noregi, Skotlandi, Maine-fylki í Bandaríkjunum og Ontario í Kanada til að þróa saman lausnir á sameiginlegum áskorunum. Þátttakendur skulu vera á aldrinum 18-35 ára. Þátttaka er ókeypis.

Norræna Atlantssamstarfið (NORA) skipuleggur hakkaþonið ásamt skosku samtökunum Highlands and Islands Enterprise (HIE). Þess utan taka University of New England og Cooperation Council of Ontario í Kanada þátt. Norræna ráðherranefndin og skosk stjórnvöld eru einnig bakhjarlar hakkaþonsins.

Meginumræðuefni hakkaþonsins er tvíþætt: stafrænt heilbrigði í strjálbýli og enduruppbygging ferðaþjónustu eftir Covid-faraldurinn. Þátttakendur mega gjarnan hafa í huga þætti eins og kóðun (coding), hönnun, heilbrigðismál og ferðaþjónustu. Vonast er til þess að í þessari hugmyndasamkeppni verði fundnar stafrænar lausnir sem auka aðgengi að mikilvægri heilbrigðisþjónustu og stuðla að sjálfbærum vexti innan ferðaþjónustunnar. Hinir ungu þátttakendur fá einnig stuðning til að gera áætlun um verkefni sem þeir vilja koma af stað.

Fyrir utan það að hver og einn kemur með sína hugmynd/hugmyndir á hakkaþonið verða settir saman alþjóðlegir hópar 4-5 einstaklinga með ólíkan bakgrunn og þekkingu, sem vinna saman að útfærslu hugmynda.

Fyrir bestu hugmyndir innan þessara tveggja áhersluefna (stafrænt heilbrigði í strjálbýli og enduruppbygging ferðaþjónustu eftir Covid-faraldurinn) eru peningaverðlaun og möguleikar á að þróa viðskiptahugmynd.

Hakkaþonið hefst föstudaginn 19. mars kl. 18.00 og lýkur sunnudaginn 21. mars kl. 18.00.

Skráning og nánari upplýsingar: thinkrural.org.

Frestur til að skrá sig rennur út mánudaginn 15. mars.

Nánari upplýsingar:
Sigríður K. Þorgrímsdóttir, tengiliður NORA á Íslandi, netfang: sigga@byggdastofnun.is og sími 8697203
Eða umsjónarmaður hakkaþonsins:
Øystein Andresen, verkefnastjóri og ráðgjafi, NORA, oystein@nora.fo – sími +298 214430.

Linkur á Thinkrurla á Byggðastofnun

Um NORA  - Norræna Atlantssamstarfið

Norræna Atlantssamstarfið (NORA) eru samtök fjögurra landa og fellur starfsemin undir byggðastefnu Norrænu Ráðherranefndarinnar. 

Starfssvæði NORA nær til Grænlands, Íslands, Færeyja og strandhéraða Noregs (níu norskra strandfylka frá Finnmörku í norðri til Rogalands í suðri svo og Svalbarða). Landfræðileg lega, sameiginleg einkenni, viðfangsefni, saga, stofnanir svo og menningarleg bönd tengja NORA-löndin.

NORA styrkir samstarf á svæðinu með það að markmiði að gera Norðuratlantssvæðið að öflugu norrænu svæði, sem einkennist af sterkri sjálfbærri efnahagsþróun. Það er meðal annars gert með því að styðja samstarf í atvinnulífi og rannsókna- og þróunarstarf  þvert á landamæri.

NORA er fjármagnað af Norrænu ráðherranefndinni ásamt framlagi allra fjögurra landanna sem að samstarfinu standa. Í NORA-nefndinni eru tólf fulltrúar, þrír frá hverju landi á NORA-svæðinu. Einn frá hverju landi situr í framkvæmdastjórn NORA.

Skrifstofa NORA er í Þórshöfn í Færeyjum. Í hinum löndunum eru landsskrifstofur þar sem starfa tengiliðir fyrir NORA. Á Íslandi er Byggðastofnun landsskrifstofa NORA og Sigríður K. Þorgrímsdóttir tengiliður.