Sveppi og Villi skemmta í Tjarnarborg

Sveppi og Villi
Sveppi og Villi

Hinir geysivinsælu Sveppi og Villi skemmta í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði,  laugardaginn 10. desember kl 15:00.

Það er ekki á hverjum degi sem þeir drengir eru með sýningu opna fyrir alla og því er um að gera að nýta sér þetta einstaka tækifæri fyrir fjölskylduna til að koma og skemmta sér saman. Að sýningu lokinni býðst gestum upp á að spjalla við Sveppa og Villa ásamt því að fá mynd af sér með þeim drengjum.

Sveppa og Villa er óþarfi að kynna enda hafa þeir um árabili verið í hópi langvinsælustu skemmtikrafta landsins og er saga þeirra vægast sagt vegleg; yfir 100 sjónvarpsþættir, 4 vinsælar kvikmyndir, metsölu- og verðlaunabækur og óteljandi framkomur á allskonar skemmtunum.

Forsala miða fer fram í Menningarhúsinu Tjarnarborg (engin posi) og hefst miðvikudaginn 7. desember.  2.500 kr.  í forsölu, 2.900 kr. við innganginn. Eitt verð óháð aldri.

Húsið opnar 30 mínútum áður en að skemmtunin hefst