Svæðisfundir DMP - Fjallabyggð og Skagafjörður

Svæðisfundur DMP fyrir Fjallabyggð og Skagafjörð verður haldin þann 31. október nk. kl. 9:30 til 15:00 í Háskólanum á Hólum í Hjaltadal.

Undanfarna mánuði hefur Markaðsstofa Norðurlands unnið að gerð áfangastaðaáætlunar fyrir Norðurland. Verkefnið snýst um að skipuleggja og samhæfa þróun og stýringu á öllum þeim þáttum sem geta haft áhrif á upplifun ferðamanna á viðkomandi svæði/áfangastað, þ.m.t. þarfir gesta, heimamanna, fyrirtækja og umhverfis

Markmið fundarins er að fara yfir nokkur atriði sem tengjast þessari vinnu. Á fundinum verður ákveðið hver forgangsverkefni hagsmunaaðila á svæðinu verða og farið verður yfir markaðsáherslur svæðisins.

Því er mikilvægt fyrir alla að mæta sem vilja taka þátt í að þróa ábyrga ferðaþjónustu á sínu svæði.

Fundurinn er opinn öllum og boðið verður upp á léttar veitingar. Til að geta tekið þátt þá þarf að skrá sig á fundinn inná www.nordurland.is

Nánari upplýsingar veitir Björn H. Reynisson, á netfangið bjorn@nordurland.is eða í síma 462-3300.