Sunnudagskaffi með skapandi fólki í Alþýðuhúsinu

Sunnudagskaffi með skapandi fólki í Alþýðuhúsinu á Siglufirði 4. febrúar nk.
Næstkomandi sunnudag kl. 14:30 til 15:30 verður boðið í sunnudagskaffi með J Pasila. Hún mun kynna verk sín og spjalla við gesti. Að erindi loknu er boðið uppá kaffiveitingar og eru allir velkomnir.

Athugið að erindið er á ensku.

J Pasila er listamaður með bakgrunn í ljósmyndun, videó og arkitektúr. Um þessar mundir býr hún og starfar ýmist í Brooklyn, NY eða á Siglufirði. Hún hefur sýnt verk sín víða um Evrópu, í Bandaríkjunum og á Siglufirði og vinnur nú að sýningu sem sett verður upp í NYC á næstunni. J Pasila hefur unnið með ýmsum listamönnum og undanfarin 5 ár verið meðlimur í “dust” listahópnum í París.

Uppbyggingasjóður, Fjallabyggð og Egilssíld styrkja menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.