Sunnudagskaffi með skapandi fólki í Alþýðuhúsinu

Kristján Einarsson
Kristján Einarsson

Sunnudagskaffi með skapandi fólki í Alþýðuhúsinu á Siglufirði 3.júlí 2016

Næstkomandi sunnudag kl. 15:30 verður efnt til samsætis í fimmta sinn undir dagskrárliðnum “ sunnudagskaffi með skapandi fólki “
Meiningin er að kalla til skapandi fólk úr samfélaginu frá ólíkum starfsstéttum til að fá innsýn í sköpunarferli. Um er að ræða óformlegt spjall, og myndast oft skemmtilegar samræður milli gesta og fyrirlesara.


Kristján Einarsson mun sjá um sunnudagskaffið að þessu sinni. Hann er stærðfræðikennari og hefur kennt stærðfræði við framhaldsskóla í fjögur ár. Hann hefur einnig tekið þátt í þverfaglega samstarfsverkefninu Reitir undanfarin fimm skipti.

Kristján mun fjalla um stærðfræði í víðu samhengi og hvernig sköpun kemur þar fram. Einnig mun hann ræða þátt sinn í þróun námsgagna, en hann gaf út bókina Hringfari: Föll og ferlar á árinu. Um þessar mundir vinnur Kristján meðal annars að því að hanna spil sem einnig tengist stærðfræðikennslu.

Erindið fer fram á ensku.
Kaffi og meðlæti í boði, allir velkomnir


Fjallabyggð, Egilssíld og Menningarráð Eyþings styrkja menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.