Sundlaug og líkamsrækt

Mynd: Magnús A. Sveinsson
Mynd: Magnús A. Sveinsson

Ný reglugerð um sóttvarnir sem tók gildi 24. febrúar sl. kveður á um rýmkun á fjöldatakmörkunum á sundstöðum og í tækjasölum líkamsræktarstöðva.
Í Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar hefur þetta þau áhrif að allt að 100 gestir geta verið í sundlaugum í einu en áfram er aðeins 7 einstaklingum heimilt að vera á sama tíma í heitum pottum til að tryggja fjarlægðarmörk milli einstaklinga þar. Athugið að börn fædd 2005 og síðar eru ekki talin með gestafjölda. Gestir sundlaugar eru vinsamlegast beðnir um að virða fjöldatakmörk í heita potta.
15 einstaklingar geta verið á sama tíma í líkamsræktarsölum en áfram þarf að láta skrá sig í tíma fyrirfram. Símanúmer í afgreiðslu íþróttahúss í Ólafsfirði er 4649250 og á Siglufirði 4649170.
Hér má sjá leiðbeiningar almannavarna fyrir starfsemi heilsu- og líkamsræktastöðva vegna Covid-19.